Þriðjudaginn 9. janúar stendur Rannís í samvinnu við GEORG og Iceland Geothermal fyrir kynningarfundi um nýja rannsóknaráætlun Horizon 2020 í orkumálum, „Secure, Clean and Efficient Energy”.
Áætlunin gildir frá 2018 til 2020. Á fundinum verður farið yfir áætlunina í heild sinni með sérstakri áherslu á þátt jarðvarma.
Fundarstaður: Orkugarður, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík, Víðgelmir.
Skráning og kaffi kl. 9:15. Dagskrá lýkur kl. 12:00.
Dagskrá
- Árangur Íslands í Orkuáætlun Horizon2020 og stuðningur Rannís við umsækjendur,
Kristmundur Þór Ólafsson, Rannís PRESENTATION - Ný Orkuáætlun Horizon 2020 (Secure Clean and Efficient Energy),
Filippo Gagliardi, framkvæmdastjórn ESB PRESENTATION - Íslensk orkuverkefni og tækifæri íslenskra aðila í evrópsku samstarfi,
Hjalti Páll Ingólfsson stjórnarnefndarfulltrúi í orkuhluta Horizon 2020 PRESENTATION
*Secure, Clean and Efficient Energy áætlunin 2018-2020 PDF
***
Skáning: http://georg.cluster.is/registration/
***